Er á lokaönn á félagsfræðibraut í Kvennó. Ég byrjaði í bekk með einum strák, en þeir eru orðnir 7 núna.
Skóli er með karakter, kennararnir þekkja mann með nafni, allt starfsfólk er yndislegt og hjálpsamt, samnemendur eru misjafnlegir, en flestir mjög fínir.
Þetta með heimasíðuna - húnvar tilbúin í haust en tafðist í vinnslu hjá tölvugúru skólans.
Þetta með þrengslin, mér finnst það kósí, en ég hef alltaf verið meira fyrir kósíheit en breiða, bjarta ganga.
Ef þú villt góða heild sem er stjórnuð af frábæru fólki, þá er Kvennó fyrir þig. Lítill og góður skóli, sérstaklega fyrir þá sem eiga erfitt með að eignast vini, t.d vegna feimni. Þú ert í bekk með fólki í allt að 4 ár þannig að það myndast sterkt vináttubönd þar.