Heiti potturinn !
Ástarlíf Ármýlinga verður á döfinni næsta fimmtudag þegar nFFÁ býður upp á stefnumótaleiki sem ku heita Heiti Potturinn. Þrír einstaklingar af sama kyni fá að kljást við ýmsar spurningar frá einu eintaki af hinu kyninu. Sá svo sem svarar best að mati hins eina fær stefnumót með honum eða henni. Sprell, líf og fjör verður í fararbroddi þetta kvöld og endar það með glæsibrag á Lækjarkoti þar sem þyrstir Ármýlingar geta teygað að vild. Sjáumst hress og kát….