Gangi þér vel ;)
Þú getur örugglega fundið einhvern svona tékklista fyrir öll prófin. Þar geturðu séð hvað þú þarft að læra og hvað þú kannt vel.
Þú getur líka skoðað gömul próf á namsmat.is, sem ég mæli sérstaklega með. Það hjálpaði mér mikið í fyrra þegar ég tók prófin.
Í prófinu er stafsetning, málfræði, lesskilningur, ritun og ljóð, minnir mig. Maður þarf eiginlega bara að hafa fylgst með í tímum til að geta þetta.
Ég mæli með að þú farir á namsmat.is og skoðir matsreglurnar (svörin) og þar ætti að standa hvað er verið að vonast eftir í rituninni. Það er mjög þægilegt að vita hvað er gefið hátt fyrir og hvað ekki.