Það er eitthvað með ykkur MR-inga, þið virðist ekki átta ykkur á að góð sambönd eru lykilatriði í nútíma samfélagi og greiði á móti greiða sé gott og gilt hugtak. Þarna má líka blanda inn náungakærleik og að stunda þann ævaforna íslenska sið að hjálpa náunganum fyrir lítið annað en ánægjuna af verkinu.
Þú veist að þú myndir aðeins græða á því að skrifa inn glósurnar þínar hér og gætir jafnvel komist upp með að læra ekki neitt fyrir næsta stöðupróf.
Pældu í tímasparnaðinum á því, að leggja niður latínubókina, rölta niður í næstu verslun og kaupa sér 2 eða 3 hluti sem vantar upp á til að þið getið kallast manneskjur.