Gekk bara nokkuð vel. Hlustunin var samt fáránleg, ég skildi varla neitt allavega í seinni æfingunni, gat svarað einni spurningu í fyrri lestrinum og hitt svona nokkurn veginn í seinna skiptið…
Gekk samt geðveikt vel í fyrri rituninni, var ekki í neinum vandræðum með orð þar. Seinna verkefnið var aðeins erfiðara… vissi t.d. ekkert hvað tur-retur þýðir, skrifaði svo bara í spurninguna “jeg skal nemlig på tur-retur”, veit ekkert hvort þetta meikar einhvern sens eður ei…
Ah, var að tékka í orðabókina og tur-retur þýðir fram og til baka. Þar stendur samt tur OG retur, þá hefði ég kannski fattað þetta. Vona að þeim finnist þetta passa í setninguna mína…