Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til
að kaupa gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.
Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í
hljóði “Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á
enn eftir að fara á svo marga staði”.
Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu.
Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo
eftir jólin.
Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða
verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr
leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum
strák um 5
ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.
Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri
litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum
amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?“ Gamla konan
svaraði
”þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín“ Svo
bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um. Hún
fór fljótlega.
Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til
hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna.
”Þetta er dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í
fyrir jólin. Hún
var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.
Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að
koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa
áhyggjur.
En hann sagði við mig sorgmæddur “Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni
dúkkuna þar sem hún en núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún
geti gefið henni hana þegar hún fer þangað”. Augun hans voru svo
sorgmædd meðan hann sagði þetta.
“Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi
segir að mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt
að hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana”.
Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín
og sagði “Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg
strax.
Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni” Svo
sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. “Ég vil
líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei”
“Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara,
en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu
systur minni”.
Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög
hljóðlátur. Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening
upp og sagði við strákinn “en ef við athugum aftur í vasan til að tékka
hvort að þú eigir nógan pening?” Allt í lagi sagði strákurinn “ég
vona að ég eigi nóg”
Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því
og við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og
meira að segja smá afgangur.
Litli strákurinn sagði “Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening.
Svo leit hann á mig og sagði ” Í gær áður en ég fór að sofa þá
bað ég Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að
geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín“
”Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa
hvíta rós handa mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið,
en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka“. Sko mamma elskar hvíta rós”.
Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti
strákinn. Ég kláraði að versla með allt öðru hugarfari
ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.
Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan “maður
keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa
voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái”
Fjölskyldan varð að ákveða hvort þsð ætti að setja hana í
öndunarvél
eða ekki, af því að unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.
Var þetta fjölskylda litla stráksins?
Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að
unga konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í
blómabúð og
keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat
séð konuna og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.
Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni
af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu.
Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin
sem þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur,
er enn þann dag í dag, erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur
drukkinn maður þetta allt frá honum.
Njóttu vel :)