Ég fór ekki sem skiptinemi en fór samt út í skóla. Bjó bara hjá ættingjum. Það er mjög þroskandi að fara svona að heiman í eitt ár. Þú ert allt í einu hjá fólki sem er skuldar þér ekki neitt og þú verður að haga þér vel.
Þeir sem ég þekki sem hafa farið sem skiptinemar hafa í sumum tilfellum verið mjög heppnir með fjölskyldur og líkað mjög vel en í sumum tilfellum getur það líka komið fyrir að fólk sé óheppið. Ef það gengur illa, þá getur verið að það sé hægt að finna aðra fjölskyldu en í einstaka tilfellum kemur það fyrir að fólk þarf að fara fyrr heim. Maður verður bara að hafa opinn huga og aðlagast lífi fólksins sem maður býr hjá.