Drekinn er í einu orði sagt stórkostlegur! Magnaður söguþráður með pólitísku ívafi sem fær mann til þess að hugsa,frábær leikur, flottir og stælí búningar og leikmynd og lýsing og frumsamin tónlist sem er hrein snilld! Svo má ekki gleyma því heldur að þetta er bráðfyndið leikrit með nettum húmor sem flestir ættu að fíla. En ef þú ert ekki búin að sjá leikritið þegar þú lest þetta þá ertu óheppin því síðustu sýningar voru í gær, föstudaginn 18.febrúar! :(