Sko það er stelpa sem er í skólanum ég segji ekki hvað hún er gömul en hún er lögð í einelti:(
Hún er skemmtileg en ekki voðalega mjó og ég held að það sé þess vegna sem hún er lögð í einelti og mér finnt það fúlt.
Hún er búin að vera í 4 skólum og flestir krakkarnir eru búnir að leggja hana í einelti(hún sagði mér það).
Einu sinni þegar hún var að labba heim var kastað í hana snjóbolta og svo stökk strákur á hana og hélt henni fastri á meðan aðrir strákar troddu snjó inní fötin hennar,munnin á henni og eyrun.Þeir fóru svo og létu hana vera eina eftir.Hún var að fara heim þegar það var búið að taka skóna hennar og hún labbaði berfætt heim til sín!
Svo í sundi þá var hún að klæða sig og var orðin sein en samt fyrst af stelpunum og hún var að fara í sundbolinn þegar stelpurnar tóku hann og hentu honum út.Svo komu svonna 10 stelpur til að ýta henni út og strákarnir biðu útí og hún var alveg miður sín! Hún fór og sagði skólastjóranum þetta og hann skammaði krakkana.Síðan í frímó þá var hún kölluð klöguskjóða og var lamin í kássu og kölluð klagari og eftir þetta er hún ein úti í frímó alveg þangað til ég og vinkona mín komum og lékum við hana!
Hún á samt 1 bestu vinkonu sem er 3 árum eldri en hún.
Nistelrooy er æði!