Kennararnir mínir.
Jæja nú er ég búinn að sjá alveg helling af svona greinum um kennara og hef haft gaman af því að lesa þær flestar.
Ég er semsagt í 9. bekk í ónefndum skóla í litlum bæ á Suðurlandi, ágætis skóli hérna. Kennararnir sumir nokkuð skrautlegir samt.
—
Íslenska:Íslenskukennarinn minn er kona sem er eitthvað að nálgast fimmtugt. Hún er alltaf í frekar vafasömum fötum.. geggjað þröngum gallabuxum sem henta vexti hennar ekki vel og líka oft í brúnum, háhæluðum leðurstígvélum sem ná upp að hnjám. Hún er alveg ágætis kennari, hef samt haft þá betri og reyndar voru flestir kennararnir sem ég hafði í gamla skólanum mun skemmtilegri og betri en hérna. (Ég var að flytja á nýjan stað.) Enn hún er bara svona ágætur kennari, ekki slæmur og ekki góður. Ágætis andi í tímum hjá henni alltaf.
Enska/Spænska:Þetta er alveg kolbrjáluð kerling. Hún er svona ca. 40-45 ára, vel í holdum og er alltaf alveg brjáluð. Byrjar flestalla tíma á að öskra á hvern þann sem vogar sér að tala. Bekkurinn sem ég er í núna er alveg ferlega illa að sér í ensku miðað við 9. bekk, eða allavega svona flestir. Ég ætla að taka samræmt próf í ensku í vor. Hún er samt mjög góður kennari þó að hún sé ekki skemmtileg og tímarnir hjá henni séu alls ekki skemmtilegir. Í spænsku er hún samt mun afslappaðri og oft bara skemmtileg og það er gaman að læra spænsku hjá henni.
Danska: Ohh, ég hata dönsku hjá þessari kellingu. Fimmtug, rauðhærð, stuttklippt og með skalla. Ekki nett semsagt. Svitnar ofsalega og ganga um það sögur í skólanum að svitinn hafi lekið niður á borðið þegar hún hallaði sér yfir það. Get alveg trúað því. Mér gengur samt vel í dönsku þó að það sé leiðinlegt fag og þessi leiðinlegi kennari gerir það enn leiðinlegra.
Stærðfræði/Íþróttir: Hahaha, þetta er nú einn af meiri snillingum sem ég hef séð. Hann er svona sirka sextugur en er samt alveg eldhress og skemmtilegur kennari, bæði í stærðfræði og íþróttum. Hann spilar alltaf með okkur í fótbolta í íþróttum enda fornfrægur kappi þarna á ferð. Mjög fitt gamall kall. Hann er alltaf í bleikum skyrtum og er bara einn af skemmtilegri kennurunum í þessum skóla.
Samfélagsfræði: Þessi maður er snillingur. 35 ára kappi sem að reytir af sér brandarana en er líka góður kennari og maður nennir að fylgjast meða í tímum hjá honum. Uppáhaldskennarinn minn eiginlega.
Náttúrufræði: Ojj, hvað þessi kall er ógeðslegur. Hann er frá Reykjavík og var eitthvað vafasamur þar og færði sig í kennslu út fyrir borgina og þangað sem að ég bý. Ég er í öðru efni í náttúrufræði og þarf þessvegna mjög lítið að hlusta á hann í tímum sem betur fer, get bara verið með minn iPod og reynt að blokka þennan viðbjóð út. Hann er alltaf að reyna við stelpurnar og gengur í stuttum og þröngum hlýrabolum sem að sýna “flotta” drekatattúið sem hann er með á öxlinni. Viðbjóðslegur kennari og líka lélegur, skrifar bara eitthvað bull uppá töflu og er alveg sama þó að enginn hlusti á hann né glósi.
Sund: Sundkennarinn minn er mjög fínn, leyfir okkur bara að chilla í tímum. Hann er líka að þjálfa mig í fótbolta og er bara nettur gaur.