Sumir kennarar eru ekki allveg í lagi:

Einu sinni var bara þetta venjulega skvaldur í bekknum og við vorum að láta ganga könnun milli borða (í 10.bekk) Kennarinn skipaði einni stelpunni að láta hann fá blaðið undir eins og hún sagði bara okey og lítið mál með það, en hann allt í einu, bókstaflega SNAPPAÐI! þrusaði bók á borðið og öskraði brjálað á okkur. Ég hef aldrei séð neinn svo brjálaðan í lífi mínu!!
Svo einu sinni vorum við að tala saman í tíma og svoleiðis og vitið hvað hann sagði við okkur!
“Þið farið öll til helvítis”!!!
Svo leggur hann eina stelpu í einelti, ef eitthvað gerist, ER það henni að kenna!

Íþróttakennari sem ég veit um var alltaf að ná í staka sokka og svoleiðis úr óskilamununum, fór síðan inn til litlustelpnanna, í búningsklefann, þar sem þær voru í sturtu og svona(í barnaskóla), til að láta vita að eitthver hefði “gleymt” sokki! Síðar var þetta sannað og hann var sem betur fer rekinn!!!

Margir kennarar og gangaverðir kalla okkur ýmsum nöfnum og eru oft virkilega andstyggilegir. Segja okkur að halda kjafti og eru með allgera yfirlætisstæla, samt erum við alls enginn vandræðabekkur!

Tónmenntakennari litlu systur minnar(5.bekk) slær strákana stundum utan undir og þrusaði einu sinni pennaveski viljandi framan í einn þeirra!!

Það eru náttúrulega til fínir kennarar, en sumir eru allveg klikk!