Jæja gott fólk þar sem að ég klúðraði auglýsingunni síðast með að auglýsa það á vitlausum degi (common mistake) vegna félagsútilegu Landnema (sem var geggjuð) ætla ég nú að gera almennilega auglýsingu.
Mótið að þessu sinni verður í einhveru mesta action spili sem fyrir finnst. Já það verður keppt í KLEPPARA ég meina hver vill ekki vera RS meistari í Kleppara.
Við opnum húsið klukkan 20:00 og getur fólk þá komið og hitað upp spjallað saman og auðvitað spilað. Síðan opnar sjoppan klukkan 20:30 og verður boðið upp á vöfflur að vana, nammi og gos (hafið þið einhverjar sérstakar óskir takið það fram svo hægt verði að vera búið að redda því í sjoppuna). Við hvetjum alla að styrkja kaffihúsakvöldið með að kaupa eins og menn séu 14 ára stúlkur í verslunarferð í london rétt eftir fermingu . Mótið byrjar síðan einhversstaðar á milli 21:00 og 21:30 svo þótt þið séuð ekki mætt klukkan 20:00 þurfið þið ekki að sleppa að mæta því þið haldið að þið hafið misst af þessu. Svo jafnvel þið sem ætlið að horfa á Dagvaktina getið mætt á mótið.
Látið síðan alla skáta í félaginu ykkar vita og mætið sjálf