Hæ hæ
Já þetta er rétt, það verður sérstakt rekkaskátakvöld fyrir þá skáta sem eru skráðir rekkaskátar á mótinu.
Þetta verður sér ferð út af mótssvæðinu, með geggjaðri dagskrá. Ég vil ekki segja of mikið en það verður farið út á opið haf, þeir sem vilja geta prófað wakeboard (jadarsport.is) það verður farið í rómó sund, gist annars staðar en á mótssvæðinu, þetta verður í rauninni bara risapartí fyrir rekka og alls konar óvæntir atburðir sem eiga að koma á óvart :)
Það verða ekki sér tjaldbúðir fyrir rekkaskáta, EN það verða sér IST búðir fyrir 18 ára og eldri. Svo verða fleiri viðburðir fyrir rekkaskáta á mótinu, til dæmis fáið þið kaffihúsið út af fyrir ykkur eitt kvöld.
Endilega hafið samband ef þið hafið fleiri spurningar, þið megið líka endilega segja mér ef það er eitthvað sérstakt sem ykkur langar að gera :)
kær kveðja
Harpa Ósk, dagskrárstjóri landsmóts
harpa@skati.is