Flugi Iceland Express FHE153 sem átti að fara í loftið kl. 7:50 seinkar af óviðráðanlegum orsökum og nú er áætluð brottför kl. 16:45. Haft verður samband við alla þá sem áttu að fara í þetta flug og tilkynntar breytingar á brottför. Nánari upplýsingar veittar hjá sveitarforingjum og í skátamiðstöðinni.
Ástæðan fyrir þessum töfum er að ein vél hjá Iceland Express fékk eldingu í sig við flugtak frá Stansted fyrr í vikunni. Fyrirtækið hefur beðist afsökunar á þessum töfum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..