Ja sko :p
Þannig var það að klukkan var í kringum miðnætti og næturleikurinn var að hefjast. Ég man nú ekki hvernig leikurinn var uppbyggður en ég man hvernig endirinn var.
Við vorum búnir að plana allt alveg rosalega og við sáum að krökkunum fannst þetta hryllilega gaman, við vissum að það væri frábær endir á geggjuðu kvöldi að hafa smá einka flugeldasýningu.
Það var rangt..ekki sniðugt. Blysin og þessir fáu flugeldar sem við vorum með voru útrunnin og þetta sprakk allt í höndunum á okkur og yfir krakkana sem unnu leikinn. Það fuðruðu upp nokkrar flísbuxur og stelpurnar grétu sig í svefn eftir gríðarlegt sjhokk :)
Sem betur fer slasaðist enginn ^_^