Ömmulagið
Amma mín og amma þín
tjalda uppi á fjalli.
Kveikja eld og kyrja lag
með prímusinn í dalli.
Viðlag:
Talandi um heyvél, heyvél, heyvél, heyvél,
bagga og heybindivél. Ooohhh.
Talandi um sveitamenningu’
í skátunum skemmti ég mér.
Ljósálfur og ylfingur
sitja’í kringum eldinn.
Skinnið flá af ísbirni
og skríða undir feldinn.
Viðlag
Dróttskáti og dróttskáti
skríða oní poka,
neðar saman mjaka sér
og rennilásnum loka.
Viðlag
Svannastúlkur seint um kvöld
sestar inní tjöldin.
Rekkaskátarómantík,
ástin tekur völdin.
Viðlag
- Á huga frá 6. október 2000