1. Það er ekkert nördalegt að vera í skátunum. Í Hvítu fjöðrinni, Ægisbúum er fullt af fólki sem maður hefði ekki búist við að sjá í skátunum. Svona skemmtilegt, vinsælt, kannski pínu gelgju fólk :P (ekki leiðinlegar gelgjur samt, ahemm.)
2. Já það er gaman í skátunum. Allavega í Ægisbúum. Ég veit ekki um hin skátafélögin. Kannski eru þau hundleiðinleg?? ég efa það samt.
3. Við förum í margar útilegur og það er alltaf gaman, Það eru samt nokkur köld hike og svona… við sofum samt ekki í tjöldum, ekki halda það. Við fíflumst og skátumst og gerum einhver verkefni og þannig. Svo eru reglulega videokvöld þar sem við horfum á spólur og komum með nammi.
jahá… við gerum nú fleira, en ég ætla að láta þetta nægja.
Allt sagt með hálfri virðingu.