Ok. Skal það viðurkennast að sumir Ægisbúar eru hrokafyllri og meira pirrandi en aðrir, og er ég, persónulega, ekki stolt af því. En af hverju þá að vera á móti öllum Ægisbúum?
Þetta getur líka stafað að því að það eru engir góðir við okkur. Þetta hefur bara einfaldlega alltaf verið svona. Allir eru leiðinlegir við Ægisbúa og Ægisbúar eru leiðinlegir við alla.
En hinsvegar þetta með tjöldin… Það er ekki hægt að segja að Ægisbúar séu latir út af því að það var tjaldað fyrir litlu krakkana… Hverjir tjölduðu nefnilega? Jú, einmitt, stóru Ægisbúarnir, og það voru jú líka þeir sem ákváðu að tjalda fyrir litlu Ægisbúana. Með þessum rökum ætla ég að leyfa mér að segja að Ægisbúar séu duglegir.
Og maturinn? Mér finnst þau skátafélög sem létu krakkana sína elda sjálf einfaldlega vera letingjar. Ég veit að á þessu landsmóti var ég ein af litlu krökkunum og ég var að tala við t.d. vinkonu mína í Hraunbúum og henni fannst GEÐVEIKT fúlt að það væri ekki eldað fyrir þau. Ég meina, Ægisbúar voru bara með kokk, DJ-inn sem ykkur fannst svo lélegur reyndar, og hann bara eldaði. Fullt af öðrum DUGLEGUM skátafélögum voru með kokk.
Lúðurinn var notaður til að ræsa fólkið á MORGNANNA.
Að lokum finnst mér þið vera ekkert betri en við, þið eruð jú líka búin að vera með skítkast hér gegn Ægisbúum, gjörið svo vel að segja að við höfum byrjað, ég hugsa að það viti það enginn lengur nákvæmlega HVER byrjaði.
“En hinsvegar þetta með tjöldin… Það er ekki hægt að segja að Ægisbúar séu latir út af því að það var tjaldað fyrir litlu krakkana… Hverjir tjölduðu nefnilega? Jú, einmitt, stóru Ægisbúarnir, og það voru jú líka þeir sem ákváðu að tjalda fyrir litlu Ægisbúana. Með þessum rökum ætla ég að leyfa mér að segja að Ægisbúar séu duglegir.”
Það sem skátarnir eiga að gera er að vera í uppeldishlutverki og gera fólk að góðum þjóðfélagsþegnum. Það er ekki gert með því að ofdekra allt yngra fólkið og gera allt fyrir það.
“Og maturinn? Mér finnst þau skátafélög sem létu krakkana sína elda sjálf einfaldlega vera letingjar. Ég veit að á þessu landsmóti var ég ein af litlu krökkunum og ég var að tala við t.d. vinkonu mína í Hraunbúum og henni fannst GEÐVEIKT fúlt að það væri ekki eldað fyrir þau. Ég meina, Ægisbúar voru bara með kokk, DJ-inn sem ykkur fannst svo lélegur reyndar, og hann bara eldaði. Fullt af öðrum DUGLEGUM skátafélögum voru með kokk.”
Það sem skátarnir eiga að gera er að vera í uppeldishlutverki og gera fólk að góðum þjóðfélagsþegnum. Það er ekki gert með því að ofdekra allt yngra fólkið og gera allt fyrir það.
Þar að auki er vinkona þín virkilega heimsk og hefur líklega aldrei þurft að gera handtak. Ein af ástæðunum fyrir því að það er gaman á landsmóti er að maður tekur þátt í hlutunum. Þetta á ekki að vera eins og einhver afslöppunarferð til Spánar. Ég yrði nú ekki ánægður ef það væri ráðinn kokkur í mitt félag.
0