Nú segji ég ykkur frá Meistaramóti Hellis.
Mikil spenna er á Meistaramóti Hellis þegar aðeins einni umferð er ólokið. Fjórir keppenda leiða með 5 vinninga en sjöunda og síðasta umferð fer fram á fimmtudag. Efstir eru Björn Þorfinnsson (2315), Björn Þorsteinsson (2185), Davíð Kjartansson (2260) og Jóhann Ingvason (1990). Björn Þorfinnsson stendur vel að vígi í baráttunni um Meistaratitil Hellis en Sigurður Ingason (1735) og Hilmar Þorsteinsson (1535) hafa einnig möguleika en þeir mætast í lokaumferðinni en þeir eru einum vinningi á eftir Birni