Meistaramót Hellis 2002 hefst mánudaginn 10. mars klukkan 19:30. Mótið er 7 umferða opið kappskákmót. Þetta er í 12. sinn sem mótið fer fram, en núverandi skákmeistari Hellis er Björn Þorfinnsson sem jafnframt hefur verið oftast meistari félagins eða fjórum sinnum. Mjög vegleg og fjölbreytt verðlaun eru í boði.