Öll liðin jöfn í Grindavík
Önnur umferð í fyrsta alþjóðlega móti kvenna á Íslandi VISA mótinu fór fram í Saltfisksetrinu í kvöld sem og Skákmót Þorbjarnar-Fiskaness. Norðmenn lögðu Evrópumeistara Frakka og íslenska kvennaliðið vann sameiginlegt lið TG og SG þar sem Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir sem er aðeins 10 ára lagði andstæðing sinn. Staðan er nú sú að öll fjögur liðin hafa hlotið 4 vinninga. Þriðja umferð hefst kl. 19:30 á morgun föstudag. Teflt er í Saltfisksetrinu í Grindvík.