Kramnik leiðir í Linares

Kramnik er efstur að lokinni 9. umferð ofurmótsins í Linares sem tefld var í dag en öllum skákum dagsins lauk með jafntefli. Kramnik gerði jafntefli við Leko, Anand við Vallejo Pons og Kasparov við Radjabov. Leko er annar, hálfum vinningi á eftir Kramnik en á skák til góða.