Edduskákmótinu framhaldið í dag
Öll úrslit Edduskákmótsins-minningarmóts um Guðmund J. Guðmundsson eru nú aðgengileg hér á Skák.is en 4.-7. umferð fara fram í kvöld og hefst taflmennskan kl. 17:00 í Borgarleikhúsinu. Að loknum þremur umferðum eru 10 stórmeistarar efstir og jafnir. Það eru: Adams, Macieja, Lautier, Tregubov, Sutovsky, Ehlvest, McShane, Nikolic, Gurevich og Helgi Áss Grétarsson. Kristján Eðvarðsson er næstur íslenskra skákmanna með 2½ vinning.