Hannes gerði jafntefli við Bacrot (2671) á Stórmóti Hróksins

Hannes Hlífar Stefánsson (2569) gerði sitt fjórða jafntefli í Stórmóti Hróksins er hann gerði jafntefli við við Etianne Bacrot (2671) í 4. umferð sem tefld var í kvöld. Það sem gerir árangur Hannesar athyglisverðan er að öll jafnteflin hafa verið við skákmenn sem allir eru umtalsvert stigahærri en hann. Fjórir skákmenn leiða með 3 vinninga en það eru: Shirov (2723), Macieja (2629), Sokolov (2688) og Adams (2734) en unnu þeir í umferð dagsins. Fimmta umferð verður tefld á morgun, laugardag, og hefst kl. 14:00. Teflt er á Kjarvalsstöðum.