Meistaramót Hellis 2002 hefst mánudaginn 10. mars klukkan 19:30. Mótið er 7 umferða opið kappskákmót. Þetta er í 12. sinn sem mótið fer fram, en núverandi skákmeistari Hellis er Björn Þorfinnsson sem jafnframt hefur verið oftast meistari félagins eða fjórum sinnum. Mjög vegleg og fjölbreytt verðlaun eru í boði.
Umhugsunartíminn verður 1½ klst. á 36 leiki og 30 mínútur (gæti breyst) til að ljúka skákinni. Mótið er öllum opið. Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Teflt er á mánu-, þriðju- og fimmtudögum.
Skráning:
Heimasíða: www.hellir.is
Tölvupóstur: hellir@hellir.is
Skráning á mótstað fyrir 19:30
Aðalverðlaun:
1 verðlaun: 25.000-
2 verðlaun: 15.000-
3 verðlaun: 10.000-
Aukaverðlaun:
Skákmeistari Hellis: Chess Assisant 7 (nýjasta útgáfa)
Besti árangur undir 2000 skákstigum: Chess Assisant 7 (nýjasta útgáfa)
Besti árangur undir 1800 skákstigum: 5.000-
Besti árangur undir 1600 skákstigum: 5.000-
Besti árangur stigalausra: Skákklukka eða taflsett
Unglingaverðlaun: 3 efstu keppendurnir 15 ára og yngri fá vegleg bókaverðlaun.
Stúlknaverðlaun: 3 efstu keppendurnir 15 ára og yngri fá vegleg bókaverðlaun.
Hver keppandi hefur aðeins rétt á einum aukaverðlaunum! Stig verða látin ráða um aukaverðlaun verði skákmenn jafnir í verðlaunasætum.
Þátökugjald:
Félagsmenn kr. 2.000-; Aðrir 2.500-
Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 1.500; Aðrir 2.000.
Umferðatafla:
mánudagurinn, 10. mars, kl. 19;30
fimmtudagurinn, 13. mars, kl. 19;30
mánudagurinn, 17. mars, kl. 19:30
þriðjudagurinn, 18. mars, kl. 19:30
fimmtudaginn, 20. mars, kl. 19:30
mánudagurinn, 24. mars, kl. 19:30
fimmtudagurinn, 27. mars, kl. 19:30