Það var ekki bara í einu atriði, það var í mörgum atriðum. Held meira að segja að það hafi verið dósahlátur í teiknimynda atriðunum. Jæja, ég er líklega sá eini sem finnst hallærislegt að nota dósahlátur. Þegar einhver notar dósahlátur í þættinum sínum þá er eins og hann sé að segja við áhorfendur: “Við höldum að þú sért fáviti sem veist ekki hvað er fyndið þannig að við ætlum að troða hlátri af upptöku í kokið á þér.”
Dósahlátur er í nútímanum orðið að nokkurs konar paródíu af sjálfu sér, og hægt að nota dósahlátur aðeins til að gera grín að slæmum húmor og lélegum bröndurum. Varla í öðrum tilgangi.
Bætt við 9. janúar 2009 - 15:49
Reyndar ef þetta var tekið upp fyrir framan áhorfendur, þá er þetta tæknilega ekki dósahlátur. Einnig vil ég taka fram að þetta fór næstum ekki neitt í taugarnar í mér og ég tók reyndar næstum ekkert eftir þessu. Hefur þetta kannski verið svona í fyrri áramótaskaupum? Ég hef allavega aldrei tekið eftir þessu áður.