Hringt var í mig um daginn og mér boðin áskrift að stöð 2, sem hljóðaði þannig að ég borgaði bara fyrir stöð 2 en fengi bíórásina og allar erlendu rásirnar frítt til 5. ágúst sem er allt gott og blessað. Nema hvað að þegar ég kem og ætla að sækja myndlykilinn þá er mér tjáð að ég þurfi að skuldbinda mig í 12 mánuði til að fá þetta tilboð, sem ég vildi ekki gera og spurði hvort ég gæti ekki bara gerst áskrifandi að erlendu rásunum eingöngu, án þess að skuldbinda mig. En nei það er víst ekki hægt, til þess að gerast áskrifandi að erlendu stöðvunum þarf ég að skuldbinda mig í 12 mánuði sem er svo heimskulegt að það nær engri átt og nota bene svo til enginn fríðindi ef maður skuldbindur sig, nema kannski M12 hvað sem það nú á að færa manni. Eins og þetta lið geri sér ekki grein fyrir því að betra er að fá pening frá áskrifanda fyrir nokkra mánuði frekar en engann, eða að það séu aðrir á markaðnum sem eru að bjóða svipað án nokkurrar skuldbindingar, þá fer ég frekar og versla þessar rásir á breiðbandi hjá símanum og fæ að mér skilst einhverja sportrás frítt með, án skuldbindingar!!