Ég horfði á 70 mínútur í gærkvöldi eins og margir aðrir Íslendingar og var Leoncie gesturinn. Hún átti að drekka ógeðsdrykk en málið var að hann var bara ekkert ógeðslegur. Það var mjólk, einhver piparsósa eða eitthvað, ananas og sveppir. Hún var með “ofnæmi” gegn piparsósu og sinnepi. Auddi mátti ekki snerta ananasinn né sveppina, hann gæti verið eitraður… Hann mátti ekki láta BBQ sósu í drykkinn: “That could be drugs in it.” Ég veit að Íslendingar leggja hana í einelti en er hún ekki svolítið paranoid?
Og áskorunin. Hún gat ekki slummað Pétur, þurfti að rappa… Vá mar og ég hélt að Eminem væri lélegur. HÚN RAPPAR VERR EN HÚN SYNGUR.
Og síðast en ekki síst, fötin. Hún var svo fjólubá að maður fékk ofbirtu í augun.
Ég mæli með einhverjum öðrum næst.