Ég legg eindregið til að stjórnendur Huga setji Oz í flokkinn Sjónvarpsefni. Það hefur komið í ljós að það er mikill áhugi fyrir þættinum. Ástæður fyrir því að hann ætti að vera í Sjónvarpsefni eru t.d. að það eru sex seríur af honum og ekki er búið að sýna allar á Íslandi(bara fjórar), hver þáttur er c.a. 55 min þannig að það er nóg til af efni til að tala um hvern þátt og lokaástæðan er að þið eruð með þætti eins og Survivor (sem er algjörlega búið að þurrmjólka) og Buffy og Angel sem eru báðir hættir. Þetta mál sem ber að íhuga vel.
Allir Oz aðdáendur að svara greininni og hjálpa mér að koma honum í Sjónvarpsefni.