Ég hef spilað sims frá því að það hét sims city :) Ég spilaði líka sims farm þegar það kom. Svo kom fyrsti sims leikurinn og ég hélt því fram að hann gæti ekki verið betri en sims city (enda var það þá að mínu mati besti leikur í heimi). Ég prófaði svo sims leikinn og þá var ekki aftur snúið, ég held að ég hafi bara alls ekki leikið sims city eftir það. Eins var það svo þegar ég byrjaði að spila sims 2 þá var ömulegt að fara aftur í gamla sims. En ætli ég hafi ekki fyrst spilað sims city með frænku minni þegar ég var eitthvað um 9 eða 10 ára (hún átti leikinn ekki ég).
En þú hvað hefur þú spilað hann lengi?