Ég spyr núna enn og aftur: Hvers vegna er fólki inni á þessari síðu ef það hefur svona mikið á móti þessu áhugamáli!?! Ef þér finnst þetta svona gígantískt hallærislegt og ömulegt hvað ertu þá að gera hér? Ég legg bara til að þú finnir þér eitthvað annað áhugamál til þess að skoða, sem þér fellur við og sleppa því að vera að bögga aðra! Það eru til næg áhugamál hérna á huga svo fólki sem líkar ekki við Sims hefur nægar aðrar síður til þess að skoða!
Svo legg ég til að þú biðjist afsökunnar á þessu orðbragði, því manneskjan á greinilega líf annars væri hún ekki að skrifa hérna inn. Hvað fólk gerir við líf sitt kemur engum öðrum við svo lengi sem það er ekki verið að leggja aðra í lífshættu með einhverjum ósóma. Það að skrifa um Sims á Huga á eflaust ekki eftir að drepa neinn svo mér finnst að þú eigir að byjast afsökunnar!