Ég veit um 2 mismunandi leiðir, sú fyrri er auðveld og tekur stuttan tíma og sú seinni er mun flóknari og tekur lengri tíma.
Nr. 1: Hjón eiga fimm börn og konan er ólétt. Ef þú átt OFB getur þú látið konuna borða ostaköku á meðgöngunni, þá eru 10% meiri líkur á tvíburum, ef þú átt sama leik getur þú gert forcetwins á meðan konan er með hríðir, þá eignast hún tvíbura. Þá ertu með 9 í fjölskyldunni!
Nr. 2: Hjón búa með börnunum sínum fjórum og afa og ömmu. Afinn flytur út með börnin. Á meðan eignast hjónin önnur fjögur börn (eiga átta börn). Amman flytur út með börnin. Þegar amman er farin með börnin eignast hjónin fleiri börn (ef þú vilt eiga tíu börn eignast þau tvíbura, ef þú vilt eiga tólf börn eignast þau fjögur börn og svo framvegis). Þegar þú vilt ekki eignast fleiri börn skaltu opna svindgluggann (Ctrl+Shift+C) og skrifar þar boolprop testingcheatsenabled true. Þú heldur Shift inni og ýtir á einhverja manneskju (skiptir ekki máli hverja). Þú ýtir á More og Spawn og More og Tombstone of L and D. Svo sleppir þú Shift og ýtir á legsteininn sem kemur. Þú velur Add Neighbour to Family (ekki Add to family). Svo ýtir þú á More aftur og aftur þangað til þú finnur nöfnin á börnunum sem afinn og amman fóru með (passa sérstaklega að láta börnin ekki heita sömu nöfnum og í öðrum fjölskyldum). Svo ýtir þú á eitthvað af nöfnunum og færð það barn inn í húsið. Svo heldur þú áfram þessu þangað til að öll börnin eru komin. Þá getur þú náð í afann og ömmuna eða skilið þau eftir. Þá ertu komin með eins marga og þú vilt í fjölskylduna! Athuga að það getur verið mjög erfitt að hugsa um svona stóra fjölskyldu og húsið verður að vera nógu stórt til þess, auk þess að fjármál verða að vera í lagi!
Ég vona að ég hafi hjálpað.
Enginn finna okkur má undir fanna hjarni; daga þrjá yfir dauðum ná dapur sat hann Bjarni.