Maður getur fengið tvíbura þó maður eigi enga aukapakka, en það er nokkuð sjaldgæft og þú veist ekki hvenær það gæti gerst.
Ef þú átt Open for Business aukapakkann, þá getur Sim sem er með hátt í cooking skill bakað ostaköku (Cheesecake) alveg eins og hvað annað, og ef óléttur Sim borðar sneið, þá eru 100% líkur á að hann eignist tvíbura.
Það að skrifa forcetwins í svindgluggann gerir nákvæmlega það sama og ostakakan.
Simsinn þarf EKKI að vera með hríðir, hann þarf bara að vera orðinn óléttur þegar þetta er gert.
Síðan, ef þú átt Freetime, þá getur þú látið Simsana sem eru með Family aspiration fá aspiration benefits, en efsti kosturinn í Family flokknum (bara hjá þeim sem eru með Family sem aðal aspiration) er aukin frjósemi, sem hækkar líkurnar á tvíburum.
Það er ekki hægt að fá þríbura.