Hann er virkilega skemmtilegur, leikurin hægist bara samkvæmt því að þú ert að setja meira inn í tölvuna og þar af leiðandi að þyngja leikin.
Ég hef heyrt sögur og er alltaf að lenda í því að leikurin minn vill ekki fara í gang, það er að segja, svo virðist sem tölvan lesi ekki diskin, ég hef heyrt að aðrir hafi lent í þessu líka, mér hefur nægt að starta leiknum opna diskadrifið, og snúa leiknum aftur áður en ég loka, þá hlaðast hann inn.
Varðandi hvort hann sé þess virði að kaupa, ég mundi segja já, þetta er yndislegur leikur og margir möguleikar með honum, þó svo mér finnist súrt að baby og toddler geti ekki komið með í ferðalög þá er þetta samt cool.
Ég mæli með honum
Verðandi móðir og bíð spennt