Í The Sims™ 2 Open for Business fá leikmenn einstakt tækifæri og frelsi til að reyna sig í viðskiptum – búðu til það fyrirtæki sem þú vilt, blómabúðir, matvöruverslanir eða vinsæla matsölustaði. Hér getur þú orðið stórlax í viðskiptum með því að láta frumlegar hugmyndir þínar rætast og byggja upp fyrirtæki frá grunni – Heimur Simsanna er klár fyrir atvinnulífið!
Upplifðu viðskiptadrauma í ”öðru lífi..”
Hefur þú lumað á viðskiptahugmynd? Nú getur þú látið drauminn rætast og séð hvernig málin þróast!
Heimurinn er í þínum höndum í þessum nýja aukapakka fyrir The Sims™ 2, sem gefur þér möguleika á að upplifa tilfinninguna sem fylgir því að stofna, koma upp og reka þitt eigið fyrirtæki. Allt frá því að samþykkja teikningar bygginga að vöruúrvali, einnig þurfa leikmenn að ráða og reka fólk og velja úr hverju vörur fyrirtækisins eru gerðar. Það ert þú sem velur hvað þarf til að gera fyrirtæki Simsanna arðvænleg og skemmtileg í rekstri.
Hver er forstjórinn? Simsarnir þínir!
Í The Sims™ 2 Open for Business, munu Simsarnir læra hvað þarf til að koma sér upp traustum hópi viðskiptavina og hvað þarf til að halda þeim ánægðum, á sama tíma þarf að huga að stemmingunni á vinnustaðnum og auðvitað passa uppá að græða peninga. Leikmenn geta svo hjálpað Simsunum að búa til nýjar vörur sem henta þörfum viðskiptavinanna. Allir viðskiptavinirnir eru ólíkir, og þurfa leikmenn að læra sölutækni til að hjálpa þeim að velja vörur og hvetja þá til að kaupa. Það ert þú sem að ert forstjórinn og ræður öllu, hvort sem það er að kenna starfsmönnum, ráða starfsmenn eða reka þá.
Lærðu hvernig viðskiptalífið virkar
Gerðu það sem Simsarnir fíla að gera og nú fá þeir borgað fyrir það! Leitastu við að starfsmennirnir viti um hvað fyrirtækið snýst, og áður en þú veist af ert þú með besta og arðsamasta fyrirtækið í bænum! Nýttu hæfileika starfsmannanna og tryggðu að þú sért með besta starfsfólkið á markaðnum.