Ég náði mér í hús á www.thesims.com og með því fylgdi eitthvað drasl, meðal annars tölva og eitthvað vísindatæki. Í þessu er hægt að gera allan fjandan, láta simsana eldast og yngjast eins og manni sýnist, fara í private school, vera með A í einkunn og margt margt fleira.

Ég er að spá í því hvort að þetta geti nokkuð rústað leiknum hjá mér eða er ok að nota svona dót.