Þið haldið inni Shift og Ctrl á sama tíma og ýtið á C. Skrifið í gluggan, boolProp testingcheatsenabled true.
Þegar þú ert búin að því farðu í create a sim. Haltu inni Shift og ýttu á N. Þá geturu gert sims geimveru og svona. Ýttu á stjörnuna við hliðin á húð litunum og veldu svo græna litin til að gera geimveru.
Annað sem hægt er að gera með þessu svindli er til dæmis.. (farðu í hús, haltu inni shift, ýttu á póstkassan) þá geturu valið make all happy, sem gerir alla glaða, og allskonar, en vertu viss um að þú vitir hvað þú ert að ýta á því annars gætir þú eiðilagt sims leikin þinn alveg.
Svo geturu líka haldið inni shift og ýtt á simsinn þinn og breytt asparation, gefa þeim GSM síma, MP3 spilara, og Leikjartölvu. Svo geturu líka látið asparation meterinn verða fullan og líka gert bara þann sims glaðan. Og flutt inn simsa sem ekki er hægt að leika, gera simsinn þinn að vampíru, gert simsinn þinn ekki vera vampíru.
Og náttúrulega látið þá fá hvaða vinnu sem er með því að halda inni shift, ýta á dagblaðið, og velja einhverja vinnu braut, og svo tekuru vinnuna. Natural Scientist eða eitthvað þannig borgar mest, og með svindlinu þarftu ekki að fara í framhaldsskóla til þess að vinna við það. Svo þegar hann er komin með vinnuna, helduru aftur inni Shift og ýtir á dagblaðið, og velur set job level, og svo veluru bara 10. Þá færðu náttúrulega 10,000 á dag, en reyndar fer simsinn þinn bara í vinnu einusinni í viku og er í vinnunni í meira en 24 klst. Svo fer hann líka nakinn í vinnuna, svo það borgar sig mest að vera í show buisness, Þá fær maður 15,000 á viku, en reyndar vinnur 3 í viku. Svo kemur þyrla og nær í mann í vinnuna.
En allavegana mjög gaman, ekki ýta á neitt sem þið eruð ekki viss um hvað er, og munið að slökkva á svindlinu með að halda inni Shift og Ctrl, ýta svo á C, og skrifa boolProp testingcheatsenabled true, í gluggan.
Gangi ykkur vel. ;)