Ég ætla hér að skrifa grein um bestu og skemmtilegustu fjölskylduna sem ég hef átt í Sims.

Fyrir ca 2 mánuðum bjó ég til fjölskyldu sem bar nafnið The Dismalion. Í þessari fjölskyldu var ein kona að nafni Emelia, maður sem hét Kevin og strákur sem hét William. Fyrsta húsið þeirra var lítið, sætt og rúmaði í mesta lagi þrjá til fjóra. Ég sá strax að William yrði mjög góður því að strax eftir fyrsta skóladaginn sinn fór hann að læra og læra þangað til hann var kominn með A+. En Kevin hinsvegar var algjör vitleysingur og gerði fátt annað en að horfa á sjónvarpið sitt og drekka af mini-barnum sínum. Kevin og Emelia urðu ástfangin og eignuðust annan strák að nafni Alan og svo einum degi síðar eignuðust þau annað lítið barn sem var stelpa og hún ver nefnd
Kemelia eftir nöfnum foreldra sinna.


En nú var Dismalion fjölskyldan orðinn svo fjölmenn að Kevin og Emelia fóru að huga að húsarkaupum. Eftir mikla leit fundu þau mjög stórt og huggulegt hús
í hjarta bæjarins, en húsið var frekar dýrt svo að fjölskyldan hafði aðeins 4500 (sims peninga) til að innrétta húsið. Svo fékk Emelia sér vinnu til afla rekstrarfjár, enda var nennti Kevin ekkert að vinna og var bara heima. Og svo næsta dag fór Emelia í vinnuna og Kevin var einn hema með börnin. En svo kom það á daginn að krakkarnir voru orðnir svangir svo að Kevin fór að elda og þá kvikknaði í örbylgjuofninum og eldurinn króaði Kevin af og allt eldhúsið brann og Kevin með. Þegar Emelia kom heim varð hún mjög sár og bjó til lítinn kirkjugarð á baklóðinni og lét sinn ástkæra eiginmann hvíla þar.


Nú er Emelia flutt í nýtt hús með krakkana og er að reyna að halda Dismalion fjölskylduni á floti.

Bless og takk fyrir mig

to be continjú