Halló! Veit einhver hérna hvenær Sims 2 á að koma út á Íslandi???? Ég hélt hann ætti að koma í febrúar eða byrjun mars en það er líklega vitleysa hjá mér!! Þetta er ábyggilega geðveikur leikur!!!!! Takk fyrir…:-)
Ókei, það eru nú þegar til nokkrar umræður um þetta sama svo ég set bara sama svarið hér ;)
Á amazon.com segir að hann komi út 31. ágúst og á amazon.co.uk segir að hann komi út þann 8. október. Það er eins gott að þekkja fólk í Bandaríkjunum því eftir þessu kemur hann ekki hingað fyrr en rétt fyrir jól ;)
Ha ég hélt alltaf að hann ætti að koma út í byrjun júní!!! var ekki talað um það hérna fyrir svona 1-2 mán???<br><br>—– Vissu þið að tölvuleikir framkalla þrisvar sinnum meira ánægjuhormón en kókaínvíma …
Júmms, en Maxis hefur ekki gefið upp neinn ákveðinn útgáfudag. Þeir vilja ekki að við bindum vonir okkar við eitthvað sem svo ekki rætist. Ég er persónulega fullkomlega sátt við að bíða. Þeir eru bara að gera leikinn enn betri. Og ef ég þarf að bíða í nokkra mánuði í viðbót til þess að þeir geti lagað veðrið og sett það inn í leikinn þá er ég bara hæstánægð :)!
Já ég er alveg til í að bíða eftir honum ef hann verður miklu betri :P En varstu eitthvað að segja AÐ ÞAÐ VÆRI <b>VEÐUR</b> í honum!!?????!!!!???!! Vá þá er ég alveg til í að bíða! <br><br>—– Vissu þið að tölvuleikir framkalla þrisvar sinnum meira ánægjuhormón en kókaínvíma …
Farðu bara á www.thesims2.com og lestu chat transcripts. Þar eru ýmsar upplýsingar. Reyndar eru þau alltaf að ýja að því að það verði veður í leiknum en það voru víst einhverjir miklir erfiðleikar með það. Það rigndi sko líka inni í húsunum :Þ. En ég sit með krosslagða fingur!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..