Ég bjó til mann sem var geðveikt töff(skírði hann Tom og ættarnafnið var Cool).Húsið hans var á einni hæð,það voru sjö herbergi.Þau voru bað,eldhús,borðstofa,forstofa,stofa,svefnherbergi og sjónvarpshorn.Svo voru tvö lítil hús úti í garði en þau voru fyrir krakka.Það voru tvö herbergi í hvoru húsinu,sem tóku bæði(húsin)svona sirka tólf reiti.Ég bjó fyrst til húsið sem ég var að segja frá rétt áðan og lét síðan kallinn flytja inn.Bráðlega lét ég Tom fara niður í bæ og finna sér vini.Hann talaði við allar konurnar sem þar voru.Fór hann svo heim og hringdi í allt hverfið til að bjóða í partý.Þá komu ennþá fleiri konur og hann kynntist þeim öllum.Ég lét Tom reka alla heim og skoðaði síðan vinalistann.Þar voru bara konur og valdi sætustu konuna.Skrifaði niður nafnið hennar og gáði hvort hún væri einhverstaðar í hverfinu.Hún var þar og var líka með gott personylity.Lét kallinn kynnast konunni sem hét Margaret og þau giftust að lokum(það var geðveikt erfitt)og eignuðust rétt eftir brúðkaupið lítin son sem þau skírðu Karl.Karl óx úr grasi og varð algjör tossi.Ég rétt náði að bjarga honum frá glötun með því að láta hann læra.Tom og Margaret eignuðust svo annað barn,strák sem þau skírðu John.John og Karl urðu bestu vinir og rifust aldrei.John gjörsamlegur grallari og tossi og Karl,algjör tossi líka.En hvorugur þeirra fór í herskóla en ég gat aldrei látið þá fá pottþétt A+ því þeir mættu líka bara annanhvern dag í skólann.Seinna fæddist lítil stelpa sem var skírð Anna.Anna óx úr grasi og var gjörólík bræðrum sínum.Hún var mömmubarn,lék sér með dótið sitt meira en bræður sínir,og var algjör proffi.En brátt gerðist eitt hræðilegt,mamman kveikti óvart í og dó.Slökkviliðsmennirnir voru því miður ekki nógu fljótir að slökkva eldinn.Ég lét karlinn minn ekki deyja úr sorg heldur finna sér aðra konu.Hann daðraði við allar konur sem hann sá og var við það að gefast upp þegar hann kynntist fegurðardísinni Clöru.Þau giftu sig og eignuðust barn sem var skírt Martin.Martin óx upp og varð ALGJÖR tossi.Hann var sendur í herskóla og kom aldrei aftur.

P.s.er ekki búin að vera meira í fjölskyldunni lengi,kemst ekki í Sims.
Nothing will come from nothing, you know what they say!