Ráð til að fara ekki strax á hausinn.
Í “city ordinances” er svolítið sem heitir ‘legalize gambling’.
Ef þú kveikir á því færðu 100 simKrónur á hverjum mánuði. Leikurinn segir að glæpir gætu aukist, málið er bara að glæpir gera ekki vart við sig fyrr en borgin er orðin stærri (kringum 10000+ íbúar, held ég). Meðan allir þekkja alla er fólk ekki að níðast hvert á öðru. Af sömu ástæðu byggir maður ekki lögreglustöð strax.
Annað sem maður verður að sjá um að þær þjónustur sem þú sem borgarstjóri býður upp á séu að nýta þá peninga sem þeim eru gefnar, annars hafa þær ekkert við þá að gera.
Tökum sjúkrahús sem dæmi. Ef það eru bara 480 reglulegir sjúklingar er óþarfi að hafa 720 rúm.
Það er aðeins fernt sem verður að vera til staðar svo að það komi fólk: Zones,Vegir,Rafmagn og vatn. Allt annað má bíða þar til það eru til peningar til að halda því við.
Jafnvel þó að allt sé rekið með tapi skaltu ekki örvænta of snemma. Þú hefur væntanlega tekið eftir að það er ekki hægt að byggja allar byggingar strax, sumt krefst ákveðins íbúafjölda eða þessháttar…
Til eru amk. 4 hlutir sem maður fær ekki að byggja nema að ganga illa. Þeir geta hjálpað manni að rétta úr kútnum.
Sá fyrsti er “Federal Prison”. 5x5 reitir ef ég man rétt. Fyrir að hýsa alla vandræðagemsana greiðir simNation manni 250 simKrónur á mánuði. Best er að hafa þetta frá íbúðar-og verslunarhverfum, því fólk vill ekki búa nálægt þessu.
Ef maður skoðar þetta nánar fær maður gefið upp fjölda fanga og fjölda númeraplatna sem framleiddar eru (einhver húmor í gangi hjá Maxis, virðist vera).
Næst er það “Army base”. Ég man ekki hvað maður fær mikið fyrir þetta þar sem ég hef aldrei byggt það, það var svo stórt að ég hafði ekki pláss fyrir það.
Síðan er það “Missile Silo”. 4x4 reitir minnir mig. Fyrir að hafa þessa dauðaspýju innan borgarmarkanna færði 350 simKrónur á mánuði. (Q=Duds this month: 2)
Að lokum er það “Toxic Waste Dump”. Þetta byggir maður ekki fyrr en maður á ENGA aðra kosti. Ekki bara vill enginn búa nálægt þessu, heldur koma stundum náttúruverndarsinnar og mótmæla. Þetta hef ég heldur ekki byggt, svo ég veit lítið um það.
Ef það er annars eitthvað sérstakt sem er að trufla þig skal ég reyna að svara.
PS. Aðeins svindlarar svindla