Það sem er gott að gera er að baka bara fullt af hamborgurum og eftir það skaltu velja “throw party” í símanum (Ef þú átt Sims: House Party) og þá koma fullt af fólki. Ef þú vilt halda partí með mörgu fólki skaltu velja “throw party” svona 3-4 sinnumn í símanum og þá kemur slatti af fólki.
Ég hef alltaf einhvað ákveðið þema. Ég kaupi til dæmis græjur og stilli á svona cowboytónlist, kaupi gervinautið og læt alla klæðast cowboyfötum og svoleiðis. Bara kaupi fullt af cowboydrasli til að krydda upp á partíið.
Gott er að kaupa dansgólf og DJ græjur áður en þú heldur partíið. Svo mæli ég með útiarineldinum þar sem allt fólkið sest niður að kvöldi og syngur nokkur lög og skemmtir sér. Það er bara fullt af hlutum til að krydda aðeins upp á partíið þitt, bara um að gera að nota hugmyndaflugið.