Spurning hvort maður sendi ekki bara inn grein um Sims2 fjölskylduna sína :D. Þar sem að mér finnst svo ægilega gaman að lesa þannig greinar ;D.. en þetta er svolítið sorglegt svona!
The Garniuc family:
Í Garniuc fjölskyldunni voru 3 einstaklingar; Maria, Peter og Keelisha. Peter og Maria voru hjón sem áttu unglingsstelpuna Keelishu.
Þau fluttu inn í lítið sætt hús og allt gekk vel og þau fengu mikið af sínum þörfum uppfylltar. Maria varð líka ólétt og var mjög ánægð með það :D. En því miður á sama tíma byrjuðu einkunnir Keelish að dala og hún varð mjög óhamingjusöm því hún þurfti að vinna dag og nótt til að ná að gera heimanámið en alltaf bættist nýtt við!
Þá loksins kom barnið sem var strákur sem nefndur var Damian hann var mjög þægur og góður og stækkaði með allar sínar þarfir uppfylltar :D en þá kom svolítið soglegt fyrir. Keelish var orðin svo uppgefin af lærdómi að hún hætti að borða og dó loks úr hungri :(. Þá var mikil sorg á heimilinu og sérstaklega þar sem að sama dag varð konan ólétt!
En þau gerðu fallegt leiði og réðu garðyrkjumann til að sjá um það. En samt voru þau öll alltaf grátandi þannig að Damian litla var ekki sinnt nógu mikið og varð stækkaði þá með frekar lítið af sínum þörfum uppfylltum. Þrátt fyrir það gekk honum mjög vel í skóla og allir urðu glaðir aftur þó að þau syrgðu Keelishu ennþá. Þá komst Maria allt í einu að því að Peter hafði verið að halda framhjá henni með garðyrkjumanninum þeirra!
Hvernig skyldi þetta fara :-O?