Seinasta serían í DS9 er ein skemmtilegasta sería sem ég hef séð. Það var svo drullu flott hvað það voru margir stórir geim bardagar sem hafði (finnst mér) vantað upptil þessa. Stóru geimbardagarnir í lokinn með hundruð geimskipa frá Cardassönum, Jem-Haddars, Breen, Romulan, Klingon og allir þessir fjölmörg classar af Federatin geimskipum frá Excelsior og Miranda til Galaxy og Akira clössum var alveg stórfenlegt að sjá.
Það var líka drullu flott þegar þeir voru að skrifa undir friðarsáttmálan þá öðru megin við borðið voru Founderinn, Vortarnir, Jem-Haddarnir(Sem eru svakalegir) og Breenarnir og svo hinu megin Klingonarnir, Romularnir og Starfleet. Rosalegt samansafn af ólíkum kunþættum saman í einu herbergi.