Það er alltaf jafnleiðinlegt að vera að afsaka sig, en ég hef hreinlega ekki nennt að standa í þessu í þónokkurn tíma. ég tek þessu bara rólega svo ég fari ekki yfir um. Ég var farinn að vaka 48 kl streit, og svaf svo kannski í 2-5 og vakti svo 48.kl streit, bara til að ná þessu fyrir 16.maí eins og ég hafði áætlað. Þegar myndin var tilbúinn, þ.e. 16.maí, fann ég nokkra galla sem ég vildi breyta…og ég er búinn að laga helminginn, þ.e. 10 skot, næstu 10 eru í vinnslu, ég bara var að missa geðheilsuna við að standa í þessu.Svo ég hef tekið því mjöf rólega. Þetta er samt að koma, gefum þessu smá tíma. Þú getur skoðað starwarsx.tk ef þér leiðist eitthvað. Ég kannski flegi inn nýju efni þar fljótlega, nýjum trailer, behind the scenes efni og einhverju.
Takk fyrir áhugann, ég er að klára þetta.
p.s. Ég mæli alls ekki með því að fólk reyni að klára svona project eins síns liðs. Það væri betra að hafa crew í kringum sig sem getur doneitað hellings tíma….