Jamms, ég pantaði diskinn frá Amazon.com strax og hann kom út í des.
Um er að ræða ‘bare bones’ útgáfu! Ekkert aukaefni og lágmarksvinna lögð í allt. Warner hafði nefnilega litla trú á því að einhverjir peningar væru í B5 og vildu kosta sem allra minnstu til.
Gæðin eru OK en sérstaklega CGI atriðin í In the Beginning líta illa út á stóru breiðtjaldssjónvarpi þar sem tölvugrafíkin var bara gerð í ‘sjónvarps’ upplausn á sínum tíma.
Þrátt fyrir það líta myndirnar betur út en á nokkurri VHS spólu.
Verðið á disknum endurspeglar líka þetta. Diskurinn kostar aðeins 15,99$ hjá Amazon. Einnig er hægt að panta hana hjá Play.com fyrir 2000 (sleppur við toll) eða 3000 (með tolli). Ekki mikið fyrir TVÆR myndir, sér í lagi m.v. almennt verð hérna!
Hinsvegar er verið að gefa þær út í sitt hvoru lagi hér á svæði 2 fyrir MEIRI pening. Þær útgáfur ber að varast nema að í ljós komi að á þeim sé eitthvað aukaefni af viti eða að eitthvað mikið hafi verið gert til að bæta gæði myndanna.
Fregnir herma annars að Warner hafi komið á óvart hversu vel diskurinn seldist og sé nú að plana að gefa út Season 1 í haust/vetur. Þetta hefur þó ekki fengist staðfest. Þess ber þó að geta að þessi orðrómur er sprottinn af ‘insider’ upplýsingum sem tveir aðilar (B5LR.com og The Digital Bits) urðu sér úti um óháð hvor öðrum.