NSync aftur komnir í Star Wars?
Nú bendir allt til þess að NSync verði þrátt fyrir allt Jedi riddarar í næstu Star Wars myndinni. Að sögn George Lucas þá er hann ekki búinn að ákveða sig hvort að hann ætli að klippa glanspiltana úr myndinni eða ekki. Fyrst var tilkynnt að þeir yrðu í myndinni og olli það heilmiklu fjaðrafoki og aðdáendur Star Wars voru ekki sáttir. Svo tilkynnti Joey Fatone að það væri búið að klippa þá úr myndinni vegna þess hve fólk var ósátt. Og nú eru þeir kannski aftur komnir í myndina.