Ég var að fara yfir listann sem að Hafsteinn Þór Hilmarsson var að senda inn, það getur verið að ég hafi verið svolítið dómharður hérna einhversstaðar (held að það hafi verið á korkinum), ég verð að éta þetta ofan í mig því að þessar þýðingar eru þó nokkuð góðar, ég gæti alla vega ekki gert þetta betur.
Það er frábært að hann sé til í að vinna þetta með okkur, þ.e. hann er tilbúinn til að taka ábendingum frá okkur, þannig að ég vil hvetja alla hérna inni til að nýta sér það, en bara þegar það er nauðsynlegt, (Kes=Kex er bara innsláttarvilla). Það eru nú ekki allir sem að væru til í að láta aðra vera að blanda sér í sínar þýðingar!
Haltu uppi góðu vinnunni Hilmar (=Keep up the good work Hilmar) ;o)