Ég var að klára að glápa á þetta núna áðan og váá.
En þetta í sambandi með þau 4, ætli þau séu í alvörunni Cylones, eða ætli þau séu bara að ýminda sér þetta einhvernveginn?
Mér langar svo ekki að trúa að þau séu Cylones, en það er samt aldrei að vita.
Og hvernig eiga þau að vita það sjálf að þau séu Cylones? Þau virðast doldið efins sum í sambandi með það.
Og þetta með Starbuck, lýtur svo mikið út eins og það sé bara ýmindum hjá Lee Adama.
Ég meina, hún er á flaug frá flotanum, engin annar virðist sjá hana (á radar né þá með augunum), ekki satt?
En það er nú samt, mig langar varla að trúa að Starbuck sé bara komin út úr þáttunum þar sem að hún er svo stór karakter.
Hvað ætli verði um Gaius Baltar eftir réttarhöldin?
Verður hann drepinn á endanum? Verður áfram reynt að drepa hann?
Er fólk sátt? Verður honum treyst aftur með tímanum? Mun hann hjálpa flotanum eitthvað?
Hann er dálítil gunga, það er nú alveg satt. Hann leyndi því að það væri cylone um borð man ég eftir að hafa verið að rannsaka blóðsýni ekki satt?
Og svona í lokin, veit einhver hvað lagið heitir í endanum á þættinum? :D