Vá! Einn reiður :)
Ég er alveg sammála því að þetta lag virðist við fyrstu sýn ekki passa neitt sérlega vel við Star Trek, og við félagarnir hlógum mikið að þessu í fyrstu skiptin. En það er ekkert að þessu lagi einu og sér. Þetta er ágætislag í sínum flokki, en kannski ekki það sem við á hér. Fyrir utan það þá er alveg rétt sem einhver sagði á undan mér að það venst ágætlega, að því gefnu að maður sé ekki að drepast úr töffaraskap og hormónum og geti ekki annað en urrað í hvert sinn sem það heyrist :)
En segðu mér annað, hvað hefur verið að titillögunum hingað til?
Vargur
- aðeins chillaðri á því.
P.S. Lagið er ekki eftir Rod Stewart, þó hann sé víst sá frægasti sem hefur flutt það opinberlega (eða eitthvað svoleiðis)